Dóttir ríkasta manns á Indlandi giftir sig í vikunni en hátíðarhöldin hófust um helgina og var það engin önnur en poppdrottningin Beyoncé sem tróð upp. Isha Ambani mun ganga í hjónaband með Anand Piramal á miðvikudaginn samkvæmt frétt BBC en faðir Piramal er sömuleiðis indverskur milljarðamæringur.
Ambandi var brúðarmeyja í brúðkaupi leikkonunnar Priyönku Chopra og tónlistarmannsins Nick Jonas fyrir rúmri viku. Nú er hins vegar athyglin öll á henni en indverskir auðkýfingar og Bollywood-stjörnur eru ekki þau einu sem taka þátt í veisluhöldunum þar sem Hillary Clinton mætti í veisluna um helgina.
Beyoncé kom fram á sunnudagskvöldið en þá fór fram sérstök veisla sem var tileinkuð tónlist og dansi. Á Indlandi fara slík hátíðarhöld fram áður en hjónin eru gefin formlega saman.
Isha Ambani er dóttir Mukesh Ambani og Nitu Ambani. Ambani-hjónin búa í 27 hæða glæsihýsi en húsið var dýrasta íbúðarhúsnæði í heimi þegar það var byggt. Húsið er 174 metra hátt og 4.532 fermetrar og kallast Antilia. Bílageymsla er þar á sex hæðum, þar eru sundlaugar, danssalur, kvikmyndahús og þrír lendingarpallar fyrir þyrlur.