Colin Kroll, einn stofnenda Vine-myndbandvefjarins, fannst látinn í íbúð sinni í New York að því er bandarískir fjölmiðlar hafa eftir lögreglu. Kroll, sem var 35 ára, var einnig einn stofnenda leikja-appsins HQ Trivia sem naut mikilla vinsælda eftir að það var sett á markað, þó að BBC segi vinsældir þess hafa dalað nokkuð undanfarið.
Lögregla fann Kroll látinn eftir að kærasta hans hafði haft samband og bað um að athugað væri með hann. Kroll fannst þá látinn í íbúð sinni ásamt áhöldum til fíkniefnaneyslu.
Telur lögregla hann hafa látist eftir að hafa tekið of stóran skammt fíkniefna, en segir málið þó enn til rannsóknar.