Gefst ekki auðveldlega upp

Cardi B og Offset.
Cardi B og Offset. AFP

Rapparinn Offset gefst ekki upp auðveldlega en hann og Cardi B slitu hjónabandi sínu nýlega. Hann mætti óvænt upp á svið á tónleikum hennar á laugardaginn og reyndi að biðja hana afsökunar. Á sunnudaginn greindi Offset frá því á Twitter af hverju hann ákvað að gera þetta eins opinberlega og raun bar vitni. 

Sagði hann á Twitter að allt sem hann hefur gert rangt hafi verið gert opinbert. Þess vegna fannst honum aðeins rétt að afsökunarbeiðni hans væri opinber líka. 

Cardi B var ekki beint ánægð með uppákomuna á sviðinu eins og sést í myndbandinu hér að neðan. Hún greindi þó frá því á Instagram að hún vildi ekki að talað væri illa um barnsföður sinn á netinu. Hún væri ekki endilega að fara að byrja með honum aftur en hún vildi ekki að honum liði illa vegna ljótra ummæla á netinu. 

Cardi B greindi frá því í byrjun desember að hún og Offset væru hætt saman. Rappararnir giftu sig í fyrra og eignuðust dóttur í sumar. 

View this post on Instagram

A post shared by CARDIVENOM (@iamcardib) on Dec 16, 2018 at 1:05am PST



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson