Eyðir ekki jólunum með dóttur sinni

Doria Ragland verður ekki með dóttur sinni um jólin.
Doria Ragland verður ekki með dóttur sinni um jólin. AFP

Doria Ragland, móðir Meghan hertogaynju, mun ekki eyða jólunum með dóttur sinni, tengdasyni og Elísabetu Bretadrottningu. Drottningin var sögð hafa boðið Ragland til þess að eyða með þeim jólunum. 

Meghan er eina barn Ragland sem býr í Kaliforníu í Bandaríkjunum þar sem Meghan ólst upp. People staðfestir hins vegar að Ragland muni ekki vera viðstödd hátíðarhöldin í Englandi eins og áður var talið. 

Meghan og Harry munu dvelja á sveitasetri Vilhjálms og Katrínar yfir jólin og mæta til kirkju á jóladag með drottningunni og öðrum í bresku konungsfjölskyldunni eins og venja er. Óvenjulegt er að fólk utan bresku konungsfjölskyldunnar taki þátt í hátíðarhöldum fjölskyldunnar. Katrín eyddi til að mynda jólunum árið áður en hún giftist Vilhjálmi heima hjá foreldrum sínum. 

Foreldrar Katrínar hertogaynju hafa aldrei eytt jólunum hjá dóttur sinni og tengdafjölskyldu hennar. Katrín og Vilhjálmur voru reyndar hjá foreldrum Katrínar fyrir tveimur árum sem var óvenjulegt. 

Breska konungsfjölskyldan mætir til kirkju saman á jóladag.
Breska konungsfjölskyldan mætir til kirkju saman á jóladag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson