How I Met Your Mother-stjarnan Neil Patrick Harris er á Íslandi ásamt eiginmanni sínum David Burtka. Matreiðslumeistarinn Gísli Matthías Auðunsson tók á móti stjörnunum á veitingastað sínum Skál á Hlemmi í gær, fimmtudag er Veitingageirinn.is greinir frá.
„Þeir fengu sér nánast allan matseðillinn. Voru mjög sáttir, elskuðu matinn og vibe-ið í mathöllinni,” sagði Gísli í viðtali við Veitingageirann.is. Einnig kemur fram að þeir Harris og Burtka hafi borðað á veitingastaðnum ÓX um kvöldið.
Mennirnir eru vanir góðum mat en það kemur fram á vef Veitingageirans að Burtka hafi menntað sig í matreiðslu hjá hinum fræga matreiðsluskóla Le Gordon Bleu.