Segir Victoriu Beckham skíthrædda

Victoria Beckham er hætt að syngja og vinnur nú sem …
Victoria Beckham er hætt að syngja og vinnur nú sem fatahönnuður. mbl.is/AFP

Victoria Beckham mun ekki koma fram á tónleikum Spice Girls í sumar. Mel C segir í nýju viðtali er The Sun greinir frá að frú Beckham sé of hrædd við að koma fram með Kryddpíunum. Síðast komu þær allar saman á Ólympíuleikunum í London árið 2012. 

Segir hún þær á mismunandi stöðum í lífinu en það séu góðir staðir. Segir hún þær allar sorgmæddar yfir því að Beckham ætli ekki að vera með en allir sýni stuðning.

Segir hún þær ekki hafa grátbeðið hana um að vera með. 

„Við gerðum það ekki, við vissum það. Ólympíuleikarnir voru erfiðir fyrir hana,“ sagði Mel C. „Hún breytti um stefnu og líf hennar hefur breyst. Hún elskar bara ekki að koma fram. Og í rauninni er hún skíthrædd við það.“

Telur Mel C vera nokkrar ástæður fyrir því að hún sé hrædd við að koma fram með þeim. Frú Beckham gengur vel með fatamerki sitt og á það allan hug hennar. Það geti verið erfitt að einbeita sér að einhverju öðru. 

„Og ég er viss um að ef hún væri með ástríðu fyrir að vera á sviði og elskaði það þá væri hún þar. Við erum allar mjög viðkvæmar og við skiljum það,“ sagði íþróttakryddið. 

Mel C árið 2012.
Mel C árið 2012. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson