Björk bæjarlistamaður Hafnarfjarðar

Björk Jakobsdóttir fjöllistakona er bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar árið 2019.
Björk Jakobsdóttir fjöllistakona er bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar árið 2019. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Fjöllistakonan Björk Jakobsdóttir hlaut í dag titilinn bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2019. Björk hefur í gegnum tíðina sinnt fjölbreyttum hlutverkum og starfað meðal annars sem leikkona, leikstjóri, framleiðandi, leikskáld og uppistandari.

Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, veitti viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í dag á síðasta degi vetrar. Athöfnin er liður í hátíðinni Björtum Dögum sem stendur yfir í Hafnarfirði til sunnudags.

Í tilkynningu frá bænum segir að Björg hafi mikið af mörkum til að efla menningarlífið í Hafnarfirði og unnið meðal annars með ungu fólki að verkefnum sem hafa vakið mikla athygli.

Björk ásamt Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra og fulltrúum menningar- og ferðamálanefndar …
Björk ásamt Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra og fulltrúum menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Vinna með ungmennum vakið verðskuldaða athygli

„Hjartað slær í Hafnarfirði,“ sagði Björk þegar hún tók hrærð og stolt við viðurkenningunni. Þakkaði hún Hafnfirðingum fyrir tilnefninguna og samferðafólki sína fyrir öll ævintýrin á tæplega 30 ára starfsævi og þá ekki síst þeim ungmennum sem í dag skipa, að hennar mati, unglingalandslið í sviðslistum. „Það eflir sjálfsmynd allra unglinga að eiga hóp af frábæru ungu listafólki sem leiðir leik og tónlistarsenu framtíðarinnar á Íslandi. Þessir krakkar eru líklegir til að taka forystu í félagsmálum og skapandi störfum. Þetta eru þeir krakkar sem vinna með skóla við að skemmta börnum og unglingum með því að skapa tónlist, myndbönd, skemmtiþætti og leikrit. Það er mikilvægt fyrir börn og unglinga að eiga sterkar og jákvæðar fyrirmyndir,“ er haft eftir Björk í tilkynningu frá bænum.  

Björk hefur, allt frá útskrift úr leiklistarskóla Íslands árið 1993, starfað að leiklistarmálum á Íslandi með höfuðstöðvar í Hafnarfirði. Strax eftir útskrift stofnaði hún, ásamt fleirum, Hafnarfjarðarleikhúsið í gamla frystihúsinu á Norðurbakkanum. Þar var rekið öflugt leikhús sem sérhæfði sig í nýjum íslenskum verkum eins og Himnaríki eftir Árna Ibsen sem vakti mikla athygli á sínum tíma.

Árin eftir 2005, eftir sýningar á metsölustykkinu Sellófan þar sem Björk fór yfir líf nútímakonunnar, vann hún mest erlendis við að leikstýra Sellófan í hinum ýmsu löndum Evrópu. Árið 2010 stofnaði Björk, ásamt fleirum, Gaflaraleikhúsið sem hefur nú aðsetur við Víkingastræti í Hafnarfirði. Þar hefur hún síðustu 10 árin stýrt fjölda nýrra íslenskra leikverka.

Vinna hennar með ungmennum hefur vakið verðskuldaða athygli og hefur Björk einnig verið vítamínsprautan í endurvakningu á blómlegu leiklistarlífi í Flensborgarskólanum samhliða því að bjóða unglingadeildum í grunnskólum Hafnarfjarðar upp á vandaða og öfluga kennslu í skapandi listum. 

Þetta er í níunda sinn sem bæjarlistarmaður Hafnarfjarðar er útnefndur frá árinu 2005, en útnefningin féll niður árin 2010-2013, 2015 og 2016. 

Þeir sem hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í gegnum árin eru:

  • 2005 Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður
  • 2006 Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
  • 2007 Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
  • 2008 Sigurður Sigurjónsson, leikari
  • 2009 Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
  • 2014 Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður
  • 2017 Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður
  • 2018 Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes