Fjölskylda leikkonunnar Hayden Panettierre grátbiður hana nú að hætta með kærasta sínum Brian Hickerson.
Hickerson var handtekinn í maí fyrir meint heimilisofbeldi gegn Panettierre og hefur dómari nú staðfest að hann verði kærður.
Samkvæmt heimildarmanni People hefur fjölskyldan haft áhyggjur af henni um tíma. „Þau eru í algeru stjórnleysi og hún verður að komast yfir þennan mann,“ segir heimildarmaðurinn.
Hin 29 ára gamla leikkona, sem best er þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Nashville, hefur verið í sambandi með Hickerson síðan í ágúst í fyrra. Hún hætti með þáverandi unnusta sínum Wladimir Klitschko fyrr um sumarið.
Panettierre á 4 ára gamla dóttur með Klitschko en hún hefur að mestu leyti verið hjá föður sínum í Úkraínu síðan foreldra hennar hættu saman.