Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur fengið hlutverk í kvikmyndinni Infinite í leikstjórn Antoines Fuqua. Leikarinn Mark Wahlberg hefur einnig verið orðaður við kvikmyndina. Deadline greinir frá.
Infinite er byggð á bók D. Erics Maikranz, The Reincarnationist Papers, og er framleidd hjá Paramount. Kvikmyndin mun koma í kvikmyndahús hinn 7. ágúst 2020. Hún segir frá manni sem er ásóttur af minningum úr tveimur fyrri lífum sínum.
Leikstjórinn Fuqua hefur einnig leikstýrt myndum á borð við Training Day, King Arthur og Southpaw.
Það er nóg að gera hjá Jóhannesi Hauki um þessar mundir en hann leikur einnig í Where'd You Go, Bernadette ásamt Cate Blanchett, í The Good Liar ásamt Helen Mirren og Ian McKellen, í Bloodshot ásamt Vin Diesel og að sjálfsögðu í Eurovision-kvikmyndinni.