Fjöllistakonan Margrét Erla Maack vann með tónlistarkonunni Lady Gaga árið 2007, rétt áður en hún varð fræg. Margrét deildi sögunni á Twitter en Íslendingar keppast nú við að segja frá frægustu manneskju sem þeir hafa hitt í þræði sem ljósmyndarinn Árni Torfason hóf.
Lady Gaga. 2007 vorum við saman í burlesque- og gógóinu. Unnum saman á Slipper Room og Beauty Bar. Hún varð fræg ca ári síðar. Svo hef ég tekið viðtal v Robyn, Björk og Yann Tiersen.
— Margrét Erla Maack (@mokkilitli) September 20, 2019
Tom Cruise var í 2 vikur í tökum beint fyrir utan skólann minn í Prag. Var ÓGEÐSLEGA næs, kom reglulega yfir götuna til okkar og spjallaði og gaf heilræði. Long story short er ég núna Operating Thetan level 5 í Vísindakirkjunni.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) September 20, 2019
Var í einhverri shitty hliðargötu í Brooklyn. Einn annar maður að rölta þarna. Það var Eric Cantona. Knattspyrnumenn eru semi nóboddís í USA svo þeir eru lítið böggaðir þar. Hann sá mig reka upp stór augu og stífna upp þegar við mættumst svo hann glotti og nikkaði til mín.
— Gunnar P. Hauksson (@gunnarph) September 20, 2019
Hitti Macklemore á röltinu í San Fransisco og við vorum eins klædd pic.twitter.com/BZ35FOYLSb
— Kolbrún (@kolbrunhelga) September 20, 2019
Will Smith, á blaðamanna fundi, og hann gerði grín að mér fyrir að geispa meðann hann var að tala
— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) September 20, 2019
Al Pacino í hótellobbí í Glasgow 1997, "I really love your work man!" 😬🤮🤦♂️
— Þröstur Sigurðsson (@trostursig) September 20, 2019
Pamela Anderson á versta flugvelli heims, CDG í París. Hún labbaði inn á kaffihúsið sem við vorum á og ég sagði ósjálfrátt og hátt: OH MY GOD! Hún heyrði það alveg en settist samt á næsta borð. Ég þorði ekki að fá bolamynd með henni og sé ennþá eftir því!
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) September 20, 2019
Eina skiptið sem ég hef orðið starstrucked var þegar ég mætti Woody Harrelson í NY. En annars var Dave Grohl mjög viðkunnanlegur á Stokkseyri og það var gaman að geta sagst hafa tekið í spaðann á Clint Eastwood á Reykjanesi.
— Guðmundur Karl Sigurdórsson (@dullari) September 20, 2019
Spjallaði við David Beckham og O.G. Solskjær fyrir utan The Cliff '98. Ole Gunnar vildi spjalla því við vorum Íslendingar. Ég hélt að Beckham vildi spjalla því hann væri bara næs; en skv. pabba var hann bara svona extra næs til að lappa upp á ímyndina eftir rauða spjaldið á HM98.
— Hlynur Hallgrímsson (@hlynur) September 20, 2019