Tónlistarmaðurinn Aaron Carter, bróðir tónlistarmannsins Nick Carter úr Backstreet Boys, er búinn að selja þau skotvopn sem voru í fórum hans og ætlar að fara í meðferð.
Nick og systir þeirra Angel fengu nálgunarbann gegn bróður sínum í síðustu viku vegna hótana Aarons í garð eiginkonu Nicks. Hann sagðist vilja drepa hana og ófætt barn hennar. Aaron átti tvo hríðskotariffla, haglabyssu og eina skammbyssu.
Þau systkinin Nick og Angel sögðu einnig í síðustu viku að þau ætluðu að reyna að fá dómara til þess að skikka hann í meðferð.
Aaron er nú á leið í meðferð að eigin sögn, en alls ekki vegna þess að fjölskyldan hans vill það. Hann hefur glímt við fíknivanda lengi og hefur síðustu daga unnið með læknum við að minnka neysluna áður en hann fer í meðferð.