Spjallþáttastjórnandinn Wendy Williams dró ekkert úr þegar hún fjallaði um heimildarmynd Meghan og Harry Bretaprins sem kom út á dögunum. Í heimildarmyndinni talar Meghan um hversu erfitt það hefur verið að koma inn í konungsfjölskylduna og að vinkonur hennar hafi varað hana við að giftast prinsi.
Williams sagði í þætti sínum í gærkvöldi að enginn vorkenndi Meghan, að hún hafi vitað nákvæmlega hvað hún væri að gera og hvað hún væri að koma sér út í.
Hún hélt áfram að níða skóinn af Meghan og sagði henni að það væri bara fylgst með henni því hún væri í konungsfjölskyldunni, að enginn hafi haft áhuga á henni þegar hún lék í þáttunum Suits. Nú þyrfti hún að sætta sig við sitt hlutskipti og hætta að biðja um vorkunn.