Missti stjórn á skapi sínu í dómsal

Aaron Carter.
Aaron Carter. Skjáskot/Instagram

Tónlistarmaðurinn Aaron Carter missti stjórn á skapi sínu í dómsal í Los Angeles í Bandaríkjunum í fyrradag þegar dómari skipaði honum að skila inn öllum þeim skotvopnum sem hann á. 

Dómarinn mat það svo að Aaron væri of hættulegur sjálfum sér og öðrum til þess að eiga skotvopn. Aaron brást illa við þessu og stóð upp og ætlaði að rjúka út úr dómsalnum. Hann öskraði á dómarann að hann myndi þá fara yfir í næsta ríki til að kaupa skotvopn.

Óvíst er hvort Aaron muni skila inn þeim skotvopnum sem eru í eigu hans, en ef ekki getur dómarinn dæmt hann til fangelsisvistar.

Aaron kom fyrir dómarann til að staðfesta nálgunarbann, en tvíburasystir hans Angel hafði farið fram á tímabundið nálgunarbann í september. Hún fékk það í gegn og hefur fengið framlengt nálgunarbann gegn bróður sínum í ár. 

Angel fór fram á nálgunarbann gegn bróður sínum vegna þess að hann hafði hótað að drepa hana. Aaron hafði einnig hótað bróður sínum Nick Carter og eiginkonu hans sem var ólétt á þeim tíma. Nick og eiginkona hans fengu einnig nálgunarbann gegn honum.

Síðustu mánuðir hafa tekið mikið á Aaron sem var meðal annars lagður inn á spítala í síðustu viku vegna næringarskorts. Hann hefur glímt við fíkn og geðrænan vanda en hann er greindur með geðklofa og geðhvörf.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson