Yates fetar í fótspor Culkin

Macaulay Culkin átti stórleik í upprunalegu myndinni.
Macaulay Culkin átti stórleik í upprunalegu myndinni. imdb

Hinn 10 ára gamli Archie Yates mun feta í fótspor barnastjörnunnar Macaulay Culkin í endurgerð jólamyndarinnar frægu Home Alone. 

Tilkynnt var um nokkra leikara sem munu fara með hlutverk í endurgerð Disney+ á kvikmyndunum vinsælu, Home Alone. 

Ellie Kemper og Rob Delaney munu fara með hlutverk foreldra Yates. Yates mun ekki heita saman nafni og Culkin í upprunalegu myndunum, Kevin McAllister, heldur fær hann nýtt nafn.

Archie Yates, til hægri, mun fara með aðalhlutverkið í endurgerð …
Archie Yates, til hægri, mun fara með aðalhlutverkið í endurgerð Home Alone. AFP

Myndin mun, samkvæmt The Hollywood Reporter, fjalla um hjón, Kemper og Delaney, sem í tilraun sinni til að bjarga heimili sínu fara í stríð gegn barni sem hefur stolið dýrmætum erfðagrip.

Þetta er annað stóra hlutverkið sem hinn ungi Yates fær á ævinni, en hann naut mikillar hylli eftir hlutverk sitt í kvikmyndinni Jojo Rabbit.

Kvikmyndin er væntanleg á næsta ári. 

Ellie Kemper mun fara með hlutverk mömmunnar í endurgerð Home …
Ellie Kemper mun fara með hlutverk mömmunnar í endurgerð Home Alone. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson