Listi yfir þátttakendur í Söngvakeppni sjónvarpsins hefur verið birtur á Spotify, en opinberun listans er ekki á dagskrá Ríkisútvarpsins fyrr en í kvöld.
Fram kemur á fréttasíðunni Wiwiblogs að listanum hafi verið lekið. Á meðal þess tónlistarfólks sem er á listanum er Daði Freyr, sem áður hefur keppt í Söngvakeppninni, þungarokkshljómsveitin DIMMA og Matti Matt sem sigraði í keppninni árið 2011 með hljómsveitinni Vinir Sjonna.
Enn er ekki hægt að hlusta á listann sem birtist á Spotify hér á landi, en auk laganna sjálfra má einnig finna karaoke-útgáfur af lögunum á listanum.