Skemmtikrafturinn og fyrirsætan Christie Brinkley fer sínar eigin leiðir í flestu og á 66 ára afmælisdaginn sinn hoppaði hún upp úr köku í atriði sínu í sirkusnum í New York-borg.
Brinkley ber aldurinn vel og er í fullu fjöri í skemmtanabransanum í Bandaríkjunum. Á síðasta ári tók hún þátt í þáttunum Dancing With The Stars. Hún segir að síðasta ár hafi verið henni mjög gott. „Með aldrinum kemur viska og sjálfsöryggi sem mér finnst frelsandi. Ég veit líka að mér líður best þegar ég lít eins vel út og mér líður,“ skrifar Brinkley í færslu sinni á Instagram.
Brinkley öðlaðist mikla frægð á áttunda áratugnum þegar hún prýddi forsíðu Cosmopolitan.
View this post on InstagramA post shared by Christie Brinkley (@christiebrinkley) on Jan 13, 2020 at 10:17am PST