„Ég vil að þú vinnir í Eurovision Daði Freyr,“ segir hinn fjögurra ára gamli Hjörtur Benjamín Hjartarson í myndskeiði sem móðir hans, Ásdís Rósa Hafliðadóttir, birti á twittersíðu sinni í gær.
„Ók mitt fyrsta tweet (segir maður það?) í tilraun til þess að koma þessum skilaboðum áleiðis til Daða,“ skrifar Ásdís með tístinu þar sem hún óskar Daða Frey Péturssyni og Gagnamagninu góðs gengis í úrslitum söngvakeppninnar annað kvöld.
„Ég vona að þú vinnir og ég heiti Hjörtur Benjamín Hjartarson, í fötunum þínum. Stopp,“ bætir Hjörtur við en hann er klæddur Daða-peysu.
Daði þakkar kærlega fyrir stuðninginn og bætir við að Hjörtur Benjamín sé flottastur.
Ók mitt fyrsta tweet (segir maður það?) í tilraun til þess að koma þessum skilaboðum áleiðis til @dadimakesmusic
— Dadda (@asdisrosa10) February 27, 2020
Gangi ykkur vel á laugardaginn 👏❤️##12stig pic.twitter.com/N5UAeZrIBo