„Þú hristir rassinn, þú hristir brjóstin“

Samsett mynd

Leikkonan Kate Beckinsale fagnaði því þegar kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein var dæmdur í 23 ára fangelsi í gær. Hún rifjaði upp samskipti þeirra í kjölfar þess að hún mætti í buxnadragt á frumsýningu myndarinnar Serendipity í New York árið 2001. 

Með pistlinum á Instagram birti Beckinsale mynd af sér frá frumsýningunni í hvítri dragt. Segir hún að aðstandendur myndarinnar hafi ekki verið spenntir fyrir hátíðlegri frumsýningu nokkrum vikum eftir 11. september. Weinstein fékk þó sínu framgengt og einhvern veginn komust þau í gegnum frumsýninguna. 

Daginn eftir frumsýninguna hringdi Weinstein í hana og bað hana að koma í heimsókn með dóttur sína sem var að verða tveggja ára. Að sögn Beckinsale vildi hann leyfa dóttur hennar að leika við dóttur sína sem var á svipuðum aldri. Þegar Beckinsale var mætt með dótturina fór barnfóstra með börnin og Weinstein hóf að öskra á leikkonuna.

„Heimska kuntan þín, kuntan þín, þú eyðilagðir frumsýninguna mína,“ segir Beckinsale að Weinstein hefði öskrað á sig um leið og dyrnar lokuðust á eftir barnfóstrunni og börnunum. Sjálf vissi hún ekki um hvað hann var að tala og byrjaði að skjálfa. 

„Ef ég legg rauðan dregil fyrir þig þá ferð þú í þröngan kjól, þú hristir rassinn, þú hristir brjóstin. Þú ferð ekki á dregilinn og lítur út eins og lesbía, heimska kunta,“ segir hún Weinstein hafa öskrað á sig og fór Beckinsale í kjölfarið að gráta. 

Beckinsale segist hafa reynt að útskýra að enginn hefði viljað líta út eins og í piparsveinaveislu þegar fólk væri enn að leita að fólki á lífi. Weinstein var sama um það. „Mér er sama, þetta er mín andskotans frumsýning og ef ég vil kellingu þá fæ ég hana,“ segir Beckinsale Weinstein hafa sagt.

Leikkonan forðaði sér heim eins fljótt og hún gat en segir þetta því miður bara eitt slæmt atvik af mörgum í samskiptum sínum við Weinstein. Segir hún atvikin ekki hafa verið glæpsamleg en hún hafði fengið að finna fyrir því þegar hún sagði nei við hann. 

Hún fagnar að lokum dómnum fyrir hönd þeirra sem hann beitti kynferðislegu ofbeldi. Hún lýsir Weinstein að lokum sem yfirgangssegg og að andlegu ofbeldi eins og hann beitti verði að linna.

View this post on Instagram

These photos were taken at the premiere of Serendipity on October 5,2001. We all refused to go because holding a premiere mere weeks after 9/11 with the city still smoking felt like the most insensitive, tone deaf,disrespectful idea possible .But Harvey insisted. We flew into New York and somehow got through it. The next morning Harvey called me and asked if I would like to bring my less than two year old daughter to his house for a playdate with his similar aged daughter I said ok. I turned up and he immediately called for his nanny to take the babies to another room to play. I went to go with them and he said “No, you wait here .” The minute the door closed he started screaming “you stupid fucking CUNT, you CUNT you ruined my premiere .” I had no idea what he was talking about and started to shake.He said,”If I am throwing a red carpet you get in a tight dress, you shake your ass you shake your tits you do not go down it looking like a fucking lesbian you stupid fucking cunt .” The shock made me burst into tears.I tried to say “Harvey,the city is on fire, people are still looking for their relatives none of us even felt the premiere was appropriate much less coming out dressed like it’s a bachelor party .” He said,”I don’t care -it’s my fucking premiere and if I want pussy on the red carpet that’s what I get”.Screaming. Livid. I managed to get myself and my child out of there and yes that was one of many experiences I had that there was no recourse for,and falls under no felony.But I WAS punished for it, and for other instances where I said no to him for years,insidiously and seeming irreversibly. Hearing that he has gone to prison for 23 years is a huge relief to me on behalf of all the women he sexually assaulted or raped, and I hope will be a deterrent to that sort of behavior in this and any other industry. Having said that,the crimes that are not crimes,the inhumane bullying and sick covert abuse for which there is STILL no recourse no matter who you tell(and I did tell),these too need to go.I hope and pray that we as an industry can start to actually outlaw all abuses of power and expose them and eliminate them, for all genders,forever.And Rose,brava ❤

A post shared by Kate Beckinsale (@katebeckinsale) on Mar 11, 2020 at 7:45pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes