Kvikmyndaframleiðandinn og viðskiptamaðurinn David Geffen hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir taktleysi eftir að hann birti mynd af snekkju sinni á Instagram.
Í færslunni á Instagram sagði Geffen að hann væri í sjálfskipaðri sóttkví á snekkju sinni við Grenadíneyjar Karíbahafi til að forðast að smitast af kórónuveirunni. Færslan hefur fengið mikla athygli og margir sakað hann um taktleysi á þessum erfiðu tímum.
Geffen virðist nú hafa læst reikningi sínum á Instagram eða hreinlega eytt reikningnum. Eftir lifa þó skjáskot sem hafa fengið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Twitter.
And we have the winner for the most tone deaf rich person in the world. David Geffen, come on down: https://t.co/WuqtIAq26I
— (((Eric Rohrs))) (@EricRohrs) March 28, 2020
David Geffen sends a message:
— Sven Henrich (@NorthmanTrader) March 28, 2020
You poor plebs can suck it.
It's fabulous to be rich.
Look at me!
h/t @litcapital pic.twitter.com/q1hELQa3H3