Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti gaf út nýtt myndband í vikunni við tvö lög sem heita „bleikt ský“ og „flughræddur“. Myndbandinu er leikstýrt af Hlyni Helga og Gauta sjálfum. Myndbandið er allt bleikt í stíl við nafn á komandi plötu Gauta sem heitir „Bleikt ský“. Lögin eru heldur ólík; lagið bleikt ský er glaðlegur poppsmellur en flughræddur er melankólísk ballaða.
„Við vorum tvær vikur í þessu rými, að byggja leikmynd sem upprunalega átti að vera byggð fyrir plötuumslag en endaði svo með þessu tveggja laga tónlistarmyndbandi. Ég er mjög sáttur með útkomuna á þessu öllu saman! Við skelltum svo í útgáfupartí í samvinnu við bílabíó Smárabíó. Það var yndislegt að finna lausn á því að halda partí í samkomubanninu,“ segir Gauti.