Páll Óskar var gestur þáttarins Heima með Helga og tók þá einn sinn vinsælasta smell í gegnum tíðina, Þú komst við hjartað á mér. Að sjálfsögðu gerðu Reiðmenn vindanna þetta lag enn þá betra.
Eins og sést í þessu myndskeiði var Helgi himinlifandi með að hafa fengið Pál Óskar í þáttinn sem sýndur var í Sjónvarpi Símans og á mbl.is.