„Draumamanneskjan í djobbið“

Ragnar Kjartansson með Genevu Viaralam.
Ragnar Kjartansson með Genevu Viaralam. mbl.is

Geneva Viralam hefur verið ráðin til starfa hjá galleríinu i8 sem starfsmaður þess í New York. Viralam mun gegna stöðu „director“ eða stjórnanda og segir Börkur Arnarson, eigandi i8, að þótt starfið sé ekki nýtt af nálinni sé staðsetningin það. „Auður Jörundsdóttir vann hérna hjá okkur í svipaðri stöðu en hún var staðsett hér. „Geneva er með tólf ára reynslu í galleríheiminum og þekkir vel til okkar, hún var á sínum síðasta vinnustað, galleríinu Luhring Augustine, að vinna með okkur og Ragnari Kjartanssyni,“ segir Börkur en Luhring Augustine hefur ásamt i8 haft umsjón með Ragnari og verkum hans um árabil. Galleríið i8 er þó ekki komið með útibú í New York, svo því sé haldið til haga, heldur mun Viralam vinna þar sjálfstætt fyrir galleríið.

Börkur bendir á að vegna Covid-19-farsóttarinnar sé heimurinn að breytast mikið og allar listamessur sem i8 hafi farið á hafi legið niðri það sem af er ári og muni eflaust gera það langt fram á næsta ár. „Það hefur því orðið mikil breyting á því hvernig fólk sér og fær upplýsingar. Við þurfum að finna nýjar leiðir til að koma því áleiðis sem okkar listamenn eru að gera,“ segir Börkur.

Hefur lengi staðið til

–Er kveikjan að þessu starfi hennar þá Covid-19 og listamessufall víða um lönd?
„Nei, þetta hefur staðið til lengi,“ svarar Börkur. Hann hafi auglýst stöðuna snemma á árinu, tekið viðtöl við marga en svo hafi aðstæður breyst með Covid-19. „Hún er draumamanneskjan í djobbið. Mikill reynslubolti og þekkir mjög vel til, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum sérstaklega, bæði til þeirra sem eru safnarar og eins sýningarstjóra og safnstjóra um öll Bandaríkin. Þar erum við sérstaklega að hugsa um fyrir okkar listamenn, að hafa meiri sýnileika á því sem þeir eru að gera. Þar sem sýningahald er af mjög skornum skammti í dag þarf manneskju í símanum,“ segir Börkur um Viralam.

Börkur Arnarson á sýningu Ragnars Kjartanssonar í i8 fyrir fimm …
Börkur Arnarson á sýningu Ragnars Kjartanssonar í i8 fyrir fimm árum með móður listamannsins, Guðrúnu Ásmundsdóttur. Árni Sæberg

Flóð og farsótt

Talið berst að sölu á myndlist hjá i8 nú á tímum Covid-19. Börkur segir að flætt hafi inn í galleríið í desember og skemmdir orðið það miklar að þurft hafi að loka því í þrjá mánuði á meðan endurbætur stóðu yfir. Þegar þeim var lokið kom svo farsóttin. „Eftir að við opnuðum aftur eftir sex mánaða lokun er búið að ganga mjög vel, það er heilmikill áhugi þótt fólk sé lokað inni heima hjá sér,“ segir Börkur og fólk fagni því að enn séu haldnar sýningar í i8. Því sé jafnt fagnað innanlands sem utan. „Eins og sýningin sem við erum með núna á verkum Ólafs Elíassonar, það skiptir máli fyrir fólkið sem er að tala við okkur að utan að hér sé raunveruleg sýning en ekki bara jpg-myndir af verkum á netinu,“ segir Börkur.

Hann segir traust verða að ríkja milli seljenda myndlistar og kaupenda, að fólk þekki til gallerísins og starfsmanna þess. „Eins og með Genevu, ákveðið traust fylgir því að spjalla við manneskju sem maður hefur hitt og talað við,“ segir Börkur og bendir á að öll verkin á sýningu Ólafs Elíassonar séu seld og að helmingurinn hafi selst hér á Íslandi og hinn erlendis. Sýningunni á verkum Ólafs lýkur í i8 í dag, 15. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson