Jarðarför skoska leikarans Seans Connerys, sem var níræður þegar hann lést, verður haldin í kyrrþey. Stærri minningarathöfn verður haldin síðar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fjölskyldu hans.
„Jarðarförin verður haldin í kyrrþey en síðar verður haldin minningarathöfn sem verður skipulögð um leið og veiran hverfur á braut,“ sagði fjölskyldan í yfirlýsingu sinni.