Segir fyrrverandi hafa haldið ítrekað framhjá

Wendy WIlliams vissi af framhjáhöldum eiginmanns síns.
Wendy WIlliams vissi af framhjáhöldum eiginmanns síns. AFP

Sjónvarpskonan Wendy Williams segir að fyrrverandi eiginmaður hennar Kevin Hunter hafi raðhaldið framhjá henni á meðan þau voru gift. Williams og Hunter voru gift í 22 ár en skildu 2019. 

Williams ræddi hjónabandið í Jess Cagle Show á dögunum þar sem hún sagðist hafa vitað af framhjáhaldinu næstum frá fyrsta degi. „Við vorum gift í næstum því 22 ár. Við vorum saman í 25 ár. Ég sé ekki eftir deginum sem ég kynntist honum. Ég sé ekki eftir að hafa þolað hann í 25 ár. Og það tengist ekki því að hann hafi eignast þetta barn eða að hann hafi haft stelpu til hliðar í næstum 15 ár af hjónabandi okkar. Ég hef vitað um hana síðan í byrjun. Ég hef alltaf vitað að Kevin er raðframhjáhaldari,“ sagði Williams. 

Williams sótti um skilnaðinn í apríl 2019 eftir að hún komst að því að hann hefði eignast barn með hjákonu sinni. Williams staðfesti þær fregnir í viðtali við New York Times. 

Hunter sjálfur hefur ekki tjáð sig um málið eða staðfest að hann hafi eignast barn með annarri konu á meðan hann var giftur Williams. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson