Eini áhorfandinn var yfir sig hrifinn

Hljómsveitin Hatari hefur gert heimildamyndin A Song Called Hate sem …
Hljómsveitin Hatari hefur gert heimildamyndin A Song Called Hate sem nú er sýnd í Háskólabíói. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sænski hjúkrunarfræðingurinn Lisa Enroth fékk að vera eini áhorfandinn á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg þetta árið. Hún eyddi einni viku á eyjunni Pater Noster og horfði á 30 myndir. Í útvarpsviðtali við kanadísku útvarpsstöðina CBC sagði hún að íslenska heimildamyndin A Song Called Hate hefði staðið upp úr hjá henni. 

„Þessi íslenska mynd sem fjallar um ákvörðun íslensku hljómsveitarinnar í Eurovision 2019 að veifa palestínska fánanum talaði sterkast til mín,“ sagði Lisa Enroth aðspurð um bestu myndir hátíðarinnar

Þeir sem vilja sannreyna meðmæli Lisu Enroth með myndinni geta séð hana í Háskólabíói þar sem hún er sýnd daglega til fimmtudagskvöldsins 11. mars.  Myndin verður einnig sýnd í Bíóhöllinni á Akranesi á fimmtudagkvöldið og í Alþýðuhúsinu og Ísafirði 1. april. 

HÉR er hægt að hlusta á viðtalið við Enroth. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes