Stofnandi Microsoft, Bill Gates, og eiginkona hans Melinda tilkynntu skilnað í byrjun maí. Á dögunum birtust fréttir af framhjáhaldi Bills Gates auk þess sem vinskapur við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein hefur verið í fréttum.
„Melinda var meðvituð um að það væru vandamál til staðar en það er ekki ljóst hvort hún vissi allt,“ sagði heimildarmaður People eftir að fréttir um framhjáhaldið birtust. Talsmaður Bills Gates staðfesti á mánudaginn að hann hefði átt í ástarsambandi fyrir 20 árum.
Í frétt New York Times er Bill Gates sagður hafa það orðspor á sér að reyna við samstarfskonur sínar. Heimildarmaðurinn segir að tekið hafi verið á hegðun hans innan fyrirtækisins. Melinda Gates vann sjálf fyrir Microsoft þegar hún kynntist Bill Gates árið 1987.