Hatrið sigraði í Ósló

A Song Called Hate segir frá svaðilför Hatara í sönvakeppni …
A Song Called Hate segir frá svaðilför Hatara í sönvakeppni evrópskra sjönvarpsstöðva árið 2019. mbl.is/Eggert Jóhannesson

A Song Called Hate, var um helgina valin besta norræna heimildamyndin á Oslo Grand Pix hátíðinni. Sjö aðrar myndir voru í flokknum, meðal annars Flukt sem var valin besta myndin á Gautaborgarhátíðinni. Flukt fékk sérstaka heiðursviðurkenningu á Oslo Grand Pix.

Þriggja manna dómnefnd komst að þessari niðurstöðu og sagði meða annars: „Þetta er kvikmynd sem fær áhorfandann til að velta fyrir sér, með áhrifaríkum hætti, hvert hlutverk listarinnar ætti að vera.” Dómnefndin sendir ungum hataraaðdáendum sem koma fram í myndinni sérstakar kveðjur og er augljóst að börnin í hatarabúningunum höfðuðu til þeirra. 

Anna Hildur Hildibrandsdóttir, leikstjóri og framleiðandi myndarinnar tileinkaði verðlaunin palestínsku þjóðinni þegar hún tók við þeim síðastliðinn mánudag. „Ég er þakklát fyrir viðurkenninguna sem viðfangsefni myndarinnar fær. Þetta var ögrandi verkefni sem hafði mikil áhrif á mig persónulega. En á sama tíma fyllist maður von þegar maður fylgist með ungum listamönnum glíma við og takast að koma mikilvægri umræðu á framfæri með listgjörningi. Það er dýrmætt.”

A Song Called Hate hefur verið sýnd á 14 hátíðum víða um heim og verið tilnefnd til fjölda verðlauna. Þetta eru önnur alþjóðlegu verðlaunin sem myndin hlýtur. Myndin verður sýnd á Doc'n Roll-hátíðinni í London 16. júní næstkomandi og verður það í fyrsta sinn sem áhorfendur geta komið í bíó til að sjá hana erlendis síðan að hún var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Varsjá í október síðastliðnum. 

Umsögnina má lesa í heild sinni hér. hér.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir leikstýrði og framleiddi myndina.
Anna Hildur Hildibrandsdóttir leikstýrði og framleiddi myndina. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson