Leikkonan Sharon Stone deildi sumarlegri mynd af sér um helgina þar sem hún skartar gulum baðfötum. Undir myndina skrifaði hún gleðilegt sumar.
Myndin hefur notið mikilla vinsælda á meðal fylgjenda hennar og frægt fólk á borð við Jamie Lee Curtis, Veru Wang og Leslie Jordan slegið henni gullhamra í athugasemdakerfinu.
Stone sagði í viðtali á síðasta ári að hún hefði aldrei litið á sjálfa sig sem kynþokkafulla þrátt fyrir að vera eitt helsta kyntákn kvikmyndasögunnar í kringum aldamótin.