Rökkvi Guðnason lenti í fjórða sæti í unglingaflokki á heimsleikunum í crossfit. Keppt var í níu þrautum og vann Rökkvi tvær þeirra. Í unglingaflokki keppa sextán og sautján ára keppendur.
Hann hlaut að lokum 650 stig og var einungis 35 stigum frá þriðja sætinu, sem telst býsna lítið á heimsleikunum. Frábær árangur hjá Rökkva, en hann var að keppa í fyrsta sinn á heimsleikum. Þrátt fyrir það var þetta þriðja skiptið sem hann vinnur sér inn þátttökurétt.
Bandaríkjamaðurinn Nate Ackermann sigraði þá í keppninni í unglingaflokki en hann hlaut 815 stig í heild.