Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni Spencer hefur verið gefin út. Þar má sjá leikkonuna Kristen Stewart túlka Díönu prinsessu. Kvikmyndin Spencer eftir leikstjórann Pablo Larraín fjallar um þrjá daga í lífi prinsessunnar af Wales yfir jólin 1991.
Ekki er mikið sagt í stiklunni sem kom út í gær en í lokin segir ónefnd persóna: „Þau vita allt“. Þá heyrist Stewart svara: „Nei þau gera það ekki“.
Jack Faarting fer með hlutverk Karls Bretaprins en Timothy Spall, Sean Harris og Sally Hawkins leika einnig í kvikmyndinni.