Grammy-verðlaununum frestað

Grammy-verðlaunahátíðinni hefur verið frestað.
Grammy-verðlaunahátíðinni hefur verið frestað. AFP

Grammy-verðlaunum bandarísku hljómlistaakademíunnar hefur verið frestað vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkrón-afbrigðisins vestanhafs. Verðlaunaafhendingin átti að fara fram þann 31. janúar en hefur nú verið frestað um ótilgreindan tíma.

Sundance kvikmyndahátíðin tilkynnti einnig í dag að hún myndi að öllu leyti fara fram rafrænt af sömu ástæðu.

Afhendingunni líka frestað í fyrra

Hildur Guðnadóttir hreppti Grammy-verðlaunin í annað sinn í fyrra en þá fór afhendingin fram í mars eftir frestun. Viðburðurinn var þá sérstaklega sniðinn að sjónvarpsútsendingum en afhendingin í ár átti að vera með hefðbundnu sniði í Staples Center í Los Angeles.

Nú er þó ljóst að ekkert verður af því. Í tilkynningu frá Akademíunni segir að skipuleggjendur væru að bjóða hættunni heim ef hátíðin færi fram í lok þessa mánaðar.

„Öryggi og heilsa tónlistasamfélagsins, áhorfenda í salnum og þeirra hundruða starfsmanna sem koma að verðlaunaafhendingunni er, og verður, forgangsatriði hjá okkur,“ segir enn fremur í tilkynningunni.  

Sundance hátíðin verður með stafrænu-sniði í ár og öllum viðburðum …
Sundance hátíðin verður með stafrænu-sniði í ár og öllum viðburðum sem áttu að fara fram í persónu verið aflýst eða breytt í stafræna viðburði. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson