Óþolandi truflun þegar fólk reynir að búa til börn

Brúðkaupið mitt er framhald af hinni geysivinsælu þáttaröð Jarðarförin mín. Í þáttaröðinni er haldið áfram að fylgjast með Benedikt og litríku fjölskyldu hans, nú 18 mánuðum seinna. Benedikt gengur vel að jafna sig á aðgerðinni lífshættulegu og stefnir á að giftast æskuástinni sinni, séra Ólöfu. Þegar gamla parið ætlar að segja allri fjölskyldunni góðu fréttirnar stelur Sigríður, fyrrverandi kona Benedikts, þrumunni. Sigríður tilkynnir að hún ætli að giftast Luis, argentínska ástmanni sínum. Þau eru með sömu dagsetningu í huga og Benedikt og Ólöf höfðu ákveðið að ganga í það heilaga. Til að bæta gráu ofan á svart byrjar heilaæxlið aftur að láta á sér kræla og tími Benedikts er að renna út. Hann fær sig samt ekki til að segja neinum slæmu fréttirnar en stingur upp á því að sameina brúðkaupin, svo hann nái að minnsta kosti að giftast áður en hann deyr. 

Hugmynd og handrit er eftir Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur, Jón Gunnar Geirdal og Kristófer Dignus. Leikstjóri er Kristófer Dignus en hann leikstýrði einnig Jarðarförin mín. Laddi fer sem fyrr með hlutverk Benedikts, Ragnheiður K. Steindórsdóttir fer með hlutverk séra Ólafar, Ævar Þór Benediktsson og Birna Rún Eiríksdóttir fara með hlutverk unga parsins og Harpa Arnardóttir og Mario Glodek fara með hlutverk Sigríðar og Luis. Ungu stúlkurnar Sísí og Jasmín eru leiknar af Birtu Hall og Björk Friðriksdóttur.

Það er Glassriver sem framleiðir þættina sem kemur í Sjónvarp Símans Premium um páskana. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson