Enn bætast við nöfn þeirra listamanna sem koma fram á Þjóðhátíð í Eyjum í ár. Í dag var tilkynnt að Aron Can, XXX Rottweiler, Sprite Zero Klan, Bandmenn og Stuðlabandið munu stíga á stokk á sviðinu í Herjólfsdal um verslunarmannahelgina.
Áður hafði verið greint frá því að Flott, Emmsje Gauti, Reykjavíkurdætur, Hipsumhaps, Bríet og Bubbi kæmu fram á hátíðinni í ár.
Forsala hófst á Þjóðhátíð í lok apríl. Þjóðhátíð hefur verið aflýst síðustu tvö ár vegna heimsfaraldurinn. Það má því búast við því að hátíðarunnendur séu spenntir að tryggja sér miða á hátíðina í ár.