Skilja eftir 12 ára hjónaband

Lisa og Lenny Hochstein eru að skilja eftir 12 ára …
Lisa og Lenny Hochstein eru að skilja eftir 12 ára hjónaband. Skjáskot/Instagram

Lýtalæknirinn Lenny Hochstein hefur sótt um skilnað við eiginkonu sína, raunveruleikastjörnuna Lisu Hochstein. Lisa hefur verið eitt af andlitum raunveruleikaþáttanna Real Housewives of Miami undanfarin ár. Page Six greinir frá.

Hochstein-hjónin hafa verið gift í 12 ár og eiga tvö börn saman. 

Hjónin gerðu með sér kaupmála áður en þau gengu í hjónaband árið 2009. Samkvæmt honum mun hann greiða henni framfærslueyri. Hann hefur óskað eftir því að þau deili forræði yfir börnum sínum og að þarfir barnanna verði hafðar í forgrunni. 

Sonur þeirra Logan er sex ára en dóttir þeirra Elle er tveggja ára.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson