Sögð eyða miklum tíma saman

Fyrirsætan Emily Ratajkowski og leikarinn Brad Pitt.
Fyrirsætan Emily Ratajkowski og leikarinn Brad Pitt. Samsett mynd

Fyrirsætan Emily Ratajkowski og leikarinn Brad Pitt eru sögð eyða miklum tíma saman um þessar mundir. Samkvæmt heimildarmönnum People eru þau þó ekki opinberlega saman. 

Fyrr í mánuðinum sótti Ratajkowski um skilnað við kvikmyndaframleiðandann Sebastian Bear-McClard í hæstarétti Manhattan eftir fjögurra ára hjónaband, en þau hættu formlega saman í júlí eftir orðróm um framhjáhald Bear-McClards.

Pitt var áður með leikkonunni Angelinu Jolie, en þau skildu árið 2019 og eiga sex börn saman á aldrinum 14 til 21 árs. Pitt og Jolie hafa staðið í erfiðri forræðisdeilu í mörg ár sem virðist engan enda ætla að taka, en Pitt er þó sagður eiga í góðu sambandi við börnin. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes