Jóhanna Guðrún óþekkjanleg

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir fara með hlutverk …
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir fara með hlutverk Velmu og Roxý.

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er sannarlega komin í hlutverk fyrir söngleikinn Chicago sem sýndur verður á Akureyri á næsta ári. 

Jóhanna Guðrún fer með hlutverk Velmu en á móti henni leikur Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Marta Nordal er leikstjóri en Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er tónlistarstjóri.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinsæli og margverðlaunaði söngleikur er sýndur á Akureyri í atvinnuleikhúsi. Chicago var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu 1985 í þýðingu Flosa Ólafssonar og svo aftur í Borgarleikhúsinu árið 2005.

Um sönleikinn segir:

„Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin.

Sagan gerist á þriðja áratug síðustu aldar í hinni spilltu og lostafullu Chicagoborg þar sem svik og prettir eru daglegt brauð. Glæpakvendin Velma Kelly og Roxy Hart berjast um athygli fjölmiðla í von um frægð og frama og þrátt fyrir að vera báðar undir lás þá svífas þær einskis til að slá í gegn. Chicago er meinfyndin og skemmtileg ádeila á spillingu og yfirborðsmennsku fjölmiðla og réttarkerfisins. Hann iðar af fjöri, hispursleysi og húmor ásamt ógleymanlegri tónlist og dansatriðum sem kitla öll skynfæri.“

Chicago verður frumsýnd í janúar 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes