Engin endurkoma í kortunum

Blaðamannafulltrúi þvertekur fyrir að ABBA ætli að koma saman í …
Blaðamannafulltrúi þvertekur fyrir að ABBA ætli að koma saman í Eurovision-keppninni á næsta ári. AFP

Engar áætlanir eru um að ABBA komi saman á næsta ári til að fagna því að 50 ár eru frá því að hljómsveitin sigraði Eurovision-keppnina fyrir hönd Svía, þrátt fyrir að keppnin verði haldin í Svíþjóð á næsta ári.

Kemur þetta fram í svari blaðamannafulltrúa sveitarinnar til menningardeildar sænska ríkisútvarpsins, SVT. Eftir að Svíþjóð sigraði nýliðna Eurovision-keppni hafa sprottið upp vangaveltur um hvort ABBA muni koma saman á sviði á ný þegar keppnin verður haldin í Svíþjóð á næsta ári.

Björn Ulveus kom þó óvænt fram í nýliðinni keppni í myndbandi með kveðju til keppenda kvöldsins. Þar lýsti hann því hvernig sigur ABBA í Eurovision-keppninni opnaði fyrir þeim dyrnar að heimsfrægð og þakkar keppninni fyrir að hafa komið alþjóðlegum ferli þeirra af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes