Hætt með kærastanum eftir sjö ára samband

Mariah Carey er jólakona en það stefnir í að hún …
Mariah Carey er jólakona en það stefnir í að hún verði ein um jólin. Skjáskot/Instagram

Tónlistardívan Mariah Carey er sögð hætt með kærastanum sínum, Bryan Tanaka. Tanaka sem er dansari hefur ekki sést með Carey að undanförnu sem er nokkuð ólíkt honum. 

Jólin eru tími Carey en þá er hún vön að koma fram á mörgum tónleikum. Tanaka hefur ekki sést með Carey á tónleikum hennar síðan þeir fóru af stað í nóvember að því fram kemur á vef People. Carey dvelur nú í vetrarparadísinni Aspen líkt og svo oft áður um jólin. Tanaka fer alltaf til Aspen með Carey en hefur ekki látið sjá sig í ár. 

Carey og Tanaka byrjuðu saman árið 2016 en byrjuðu að vinna saman árið 2006. Parið sást síðast saman í mars á þessu ári þegar Carey fagnaði afmæli sínu. Talsmaður Carey neitaði að tjá sig um samband stjörnuparsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg