Helgi Björns: „Þetta verður eintóm gleði“

Hér má sjá félagana í SSSól þegar þeir voru yngri …
Hér má sjá félagana í SSSól þegar þeir voru yngri en þeir eru nú. Ljósmynd/Aðsend

Hljómsveitin SSSól eða Síðan Skein Sól með Helga Björns í fararbroddi kemur fram á tónlistarhátíð Kótelettunnar í ár, en hátíðin er haldin í 14. sinn í sumar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur fram í sinni upprunalegu mynd á Kótelettunni en sveitin er ein ástsælasta hljómsveit landsins og hefur verið starfrækt í um 37 ár.

„Það er mikil tilhlökkun hjá okkur í bandinu að koma loksins fram á Selfossi eftir langt hlé. Þetta verður eintóm gleði og fólk getur að sjálfsögðu búist við að heyra okkar allra bestu lög eins og Halló ég elska þig, Vertu þú sjálfur, Húsið og ég, Ég stend á skýi og alla hina slagarana,“ segir Helgi Björns, söngvari sveitarinnar. 

Auk Helga skipa bandið þeir Ingólfur Sigurðsson, Jakob Smári Magnússon, Eyjólfur Jóhannsson, Hrafn Thoroddsen og Stefán Már Magnússon.

Uppselt hefur verið á hátíðina undanfarin ár.

„Hátíðin verður glæsileg að venju en auk SSSól mun fjöldi frábærs tónlistarfólks koma fram sem spannar allt það besta á Íslandi í dag, nýtt og gamalt í bland. Það ætti því enginn að láta þessa veislu fram hjá sér fara,“ segir Einar Björnsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar.

Helgi Björns uppi á sviði með SSSól árið 2017.
Helgi Björns uppi á sviði með SSSól árið 2017. mbl.is/Hanna
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki besti tíminn til að sýna frumkvæði í vinnunni. Vertu víðsýnn og gefðu skoðunum annarra gaum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki besti tíminn til að sýna frumkvæði í vinnunni. Vertu víðsýnn og gefðu skoðunum annarra gaum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Eppu Nuotio
4
Sofie Sarenbrant
5
Birgitta H. Halldórsdóttir