Kynda undir orðróm um samband

Eru þau eða eru þau ekki?
Eru þau eða eru þau ekki? Samsett mynd

Fjölmiðlar um allan heim hafa fjallað af miklum ákafa um meint ástarsamband Hollywood-stjarnanna Meryl Streep og Martin Short.

Parið, sem fer með hlutverk elskenda í þáttaröðinni Only Murders in the Building, virðist ekki geta slitið sig hvort frá öðru og hefur sést mikið saman að undanförnu.

Síðastliðið laugardagskvöld sást til Streep og Short á Broadway í New York. Parið fylgdist með söngleiknum Merrily We Roll Along eftir leikskáldið George Furth. Streep og Short fóru baksviðs að sýningu lokinni, spjölluðu við leikara og tóku myndir.  

Snemma árs byrjaði hávær orðrómur um ástarsamband leikaranna. Orðrómurinn, sem Short hefur hingað til neitað og Streep ekki viljað tjá sig um, fór af stað stuttu eftir Golden Globe-verðlaunahátíðina í janúar.

Í lok febrúar sást til parsins njóta kvöldverðar á hinum sögufræga veitingastað, Giorgio Baldi, í Santa Monica. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson