Aron Brink, sonur söngvarans Sigurjóns, eða Sjonna Brink er einn þátttakenda í The Voice.
Aron söng lagið Dancing on My Own með Robyn í áheyrnarprufunum í þætti kvöldsins á SkjáEinum og gerði það svo vel að Helgi Björns, einn fjögurra þjálfara þáttarins, sneri sér við áður en Aron náði að klára fyrstu línuna í laginu.
Helgi var þó ekki einn um að vilja Aron í sitt lið en bæði Salka Sól og Unnsteinn Manuel fylgdu fast á hæla Helga og upphófst skrautleg barátta um að fá kappann í sitt lið.