Með öskrandi ljón á bringunni

Justin Bieber | 30. mars 2017

Með öskrandi ljón á bringunni

Ungstirnið Justin Bieber er sérlega hrifinn af húðflúrum, og skartar ansi mörgum slíkum víðsvegar um líkamann.

Með öskrandi ljón á bringunni

Justin Bieber | 30. mars 2017

Justin Bieber fer bráðum að verða uppiskroppa með pláss, enda …
Justin Bieber fer bráðum að verða uppiskroppa með pláss, enda er hann vel flúraður. AFP

Ungstirnið Justin Bieber er sérlega hrifinn af húðflúrum, og skartar ansi mörgum slíkum víðsvegar um líkamann.

Ungstirnið Justin Bieber er sérlega hrifinn af húðflúrum, og skartar ansi mörgum slíkum víðsvegar um líkamann.

Söngvarinn virðist nýverið hafa bætt enn einu í safnið, en flúrið sýndi hann þar sem spókaði sig um ber að ofan í Rio de Janeiro í gær.

Vefurinn Toofab greindi frá þessu, en flúrið sem um ræðir er mynd af ljóni og er staðsett á brjóstkassa söngvarans.

Bieber er ákaflega hrifinn af húðflúrum.
Bieber er ákaflega hrifinn af húðflúrum. Skjáskot / Toofab
Söngvarinn var ekki með flúrið þegar hann heimsótti Ísland á …
Söngvarinn var ekki með flúrið þegar hann heimsótti Ísland á sínum tíma. skjáskot/Fasteignamiðstöðin
mbl.is