Reðursafnið fékk hana til að opna fyrsta píkusafnið

Lundúnir | 24. september 2019

Ferðalangar í London geta bráðum heimsótt nýtt safn í borginni en sérstakt píkusafn verður opnað formlega í Camden Market um miðjan nóvember. Safnið Vagina Museum hefur verið til síðan árið 2017 en fær nú loks fastan stað að því fram kemur á vef breska Elle. 

Vagina Museum birti þessa mynd á Instagram og tilkynnti um …
Vagina Museum birti þessa mynd á Instagram og tilkynnti um væntanlega opnun safnsins. skjáskot/Instagram

Ferðalangar í London geta bráðum heimsótt nýtt safn í borginni en sérstakt píkusafn verður opnað formlega í Camden Market um miðjan nóvember. Safnið Vagina Museum hefur verið til síðan árið 2017 en fær nú loks fastan stað að því fram kemur á vef breska Elle. 

Ferðalangar í London geta bráðum heimsótt nýtt safn í borginni en sérstakt píkusafn verður opnað formlega í Camden Market um miðjan nóvember. Safnið Vagina Museum hefur verið til síðan árið 2017 en fær nú loks fastan stað að því fram kemur á vef breska Elle. 

Kona að nafni Florence Schechter er konan á bak við píkusafnið. Hugmyndin um píkusafnið kom upp að hluta til vegna almenns misskilnings sem ríkir um kynfæri kvenna en fleira spilaði inn í. Hún segir tilurð reðursafnsins á Íslandi einnig hafa verið hvatningu.

Fyrsta sýning safnsins tekur á mýtum um píkur. Þetta eru til dæmis þættir eins og hreinlæti, útferð og blæðingar. 

Það skemmir ekki fyrir að það kostar ekkert inn á þetta skemmtilega og fróðlega safn í London. 

mbl.is