Oddný Sunna Davíðsdóttir og eiginmaður hennar Sondre Jørgensen halda úr höfn á skútunni Freyju í dag. Skútan hefur legið við höfn í Kaupmannahöfn í Danmörku síðastliðin tvö ár á meðan Oddný og Sondre gerðu hana upp. Nú er hún klár til siglinga og er ferðinni heitið upp með ströndum Noregs.

Oddný og Sondre segja það vera forréttindi að getað ferðast nú á tímum veirunnar. Sem fyrr segir ætla þau að sigla upp með ströndum Noregs en Sondre er frá Noregi. Þau segjast hlakka til að hitta fjölskyldu sína í Noregi, eftir að 14 daga sóttkví lýkur.
Noregur er ekki eina landið sem þau hjónin hyggjast sækja heim á næstu mánuðum en þau koma til með að sigla suður frá Noregi. Þótt engin plön séu greypt í stein þá er planið að koma við á Hjaltlandseyjum, Írlandi og Skotlandi. Þau ætla svo að halda lengra suður, koma við á Spáni, Portúgal og í Marokkó áður en þau sigla til Tenerife um jólin. Frá Tenerife hyggjast þau svo sigla yfir Atlantshafið til Karíbahafsins.
Hægt er að fylgjast með ævintýrum Oddnýjar og Sondre á Instagram-síðu þeirra, Sailing Freyja.