Boða meiri hörku í brottkastsmálum

Eftirlit með veiðum | 28. ágúst 2021

Boða meiri hörku í brottkastsmálum

Alls hafa 84 brottkastsmál ratað á borð Fiskistofu frá 1. september 2020 til 13. ágúst. Var aðeins eitt fram að miðjum janúar en fjölgaði ört er drónar voru teknir í notkun við eftirlit með veiðum.

Boða meiri hörku í brottkastsmálum

Eftirlit með veiðum | 28. ágúst 2021

Elín B. Ragnasdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits Fiskistofu.
Elín B. Ragnasdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits Fiskistofu. mbl.is/Árni Sæberg

Alls hafa 84 brottkastsmál ratað á borð Fiskistofu frá 1. september 2020 til 13. ágúst. Var aðeins eitt fram að miðjum janúar en fjölgaði ört er drónar voru teknir í notkun við eftirlit með veiðum.

Alls hafa 84 brottkastsmál ratað á borð Fiskistofu frá 1. september 2020 til 13. ágúst. Var aðeins eitt fram að miðjum janúar en fjölgaði ört er drónar voru teknir í notkun við eftirlit með veiðum.

Elín B. Ragnarsdóttir, sviðsstjóri hjá Fisksitofu, segir í samtali við 200 mílur, sérblað um sjávarútveg sem fylgir Morgunblaðinu í dag, byltingu hafa átt sér stað í eftirlitinu.

Aðeins voru send út leiðbeiningabréf vegna málanna þar sem eftirlitið var nýtt, en til standi að taka mun harðar á brottkastsmálum á nýju fiskveiðiári, að sögn Elínar. Þá verður reynt að auka eftirlit með stærri skipum á Íslandsmiðum.

mbl.is