Villtust af leið í Geldingadölum

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 23. mars 2022

Villtust af leið í Geldingadölum

Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út um sexleytið í kvöld vegna tveggja ferðamanna sem höfðu villst af leið í þoku við gosstöðvarnar í Geldingadölum.

Ferðamenn villtust af leið við gosstöðvarnar í Geldingardölum. Mynd úr …
Ferðamenn villtust af leið við gosstöðvarnar í Geldingardölum. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út um sexleytið í kvöld vegna tveggja ferðamanna sem höfðu villst af leið í þoku við gosstöðvarnar í Geldingadölum.

Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út um sexleytið í kvöld vegna tveggja ferðamanna sem höfðu villst af leið í þoku við gosstöðvarnar í Geldingadölum.

Ferðamennirnir höfðu verið á gangi í sex klukkustundir en gátu komið hnitum úr farsíma til björgunarsveita þar sem símasamband náðist, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Tók um hálfa klukkustund að finna ferðamennina og fylgdi björgunarsveitarfólk þeim niður á bílastæði. Leitin gekk vel og voru þeir óslasaðir.

mbl.is