Gylfi Þór ráðinn í samhæfingu vegna Grindavíkur

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 26. apríl 2024

Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum, hefur tímabundið verið ráðinn af forsætisráðuneytinu til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. 

Gylfi Þór Þorsteinsson hefur verið ráðinn til að leiða samhæfingu …
Gylfi Þór Þorsteinsson hefur verið ráðinn til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. Samsett mynd/Sigurður Bogi/Kristinn Magnússon

Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum, hefur tímabundið verið ráðinn af forsætisráðuneytinu til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. 

Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum, hefur tímabundið verið ráðinn af forsætisráðuneytinu til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Mun hann meðal annars samhæfa samskipti og upplýsingagjöf til Grindvíkinga vegna jarðhræringa á Reykjanesi.

Gylfi Þór hefur víðtæka reynslu af flóknum og umfangsmiklum verkefnum. Má þar nefna móttöku flóttafólks frá Úkraínu, uppsetningu og rekstur farsóttarhúsa á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru auk annarra starfa fyrir Rauða krossinn.

mbl.is