Samþykkt kaup á fasteignum að virði 52 milljarða

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 15. maí 2024

Samþykkt kaup á fasteignum að virði 52 milljarða

Fasteignafélagið Þórkatla hefur samþykkt kaup á 660 fasteignum í Grindavík að kaupvirði um 52 milljarða króna. Mun Þórkatla í dag taka við fyrstu eignunum í Grindavík og búið er að ákveða að leiguverð íbúðarhúsnæðis nemi 25% af markaðsleigu á Suðurnesjum út þetta ár.

Samþykkt kaup á fasteignum að virði 52 milljarða

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 15. maí 2024

Fyrst um sinn verða fasteignir aðeins leigðar til fyrri eigenda …
Fyrst um sinn verða fasteignir aðeins leigðar til fyrri eigenda þeirra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fasteignafélagið Þórkatla hefur samþykkt kaup á 660 fasteignum í Grindavík að kaupvirði um 52 milljarða króna. Mun Þórkatla í dag taka við fyrstu eignunum í Grindavík og búið er að ákveða að leiguverð íbúðarhúsnæðis nemi 25% af markaðsleigu á Suðurnesjum út þetta ár.

Fasteignafélagið Þórkatla hefur samþykkt kaup á 660 fasteignum í Grindavík að kaupvirði um 52 milljarða króna. Mun Þórkatla í dag taka við fyrstu eignunum í Grindavík og búið er að ákveða að leiguverð íbúðarhúsnæðis nemi 25% af markaðsleigu á Suðurnesjum út þetta ár.

„Leigan verður í kringum 625 kr. á fermetra út þetta ár. Það verður því til dæmis hægt að leigja 100 fermetra hús í Grindavík á 62.500 kr. á mánuði.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórkötlu.

Fyrst aðeins leigt til fyrri eigenda

Fyrst um sinn verða fasteignir aðeins leigðar til fyrri eigenda þeirra en þegar fram líða stundir verður skoðað að leigja út til annarra, í þeim tilfellum sem seljendur hafa ekki óskað eftir forgangsrétti til.

„Til lengri tíma litið verður horft til markaðsleigu við leigu fasteigna til fyrri eigenda en tekið tillit til aðstæðna í bænum á hverjum tíma. Leiguverðið mun taka mið af brunabótamati eignanna og mánaðarleigan miðast við 0,5% af brunabótamati á hvern fermetra.

Þetta þýðir að fyrir hús þar sem brunabótamat á fermetra er 500.000 kr. verður leigan, áður en tekið er tillit til aðstæðna í Grindavík , 2.500 krónur á fermetra,“ segir í tilkynningunni.

Taka við fyrstu eignunum í dag

Í dag mun Þórkatla taka við fyrstu eignunum í Grindavík og fara fram sérstakir skilafundir þar sem fulltrúar félagsins og seljendur fara yfir ástand eigna og gerð verður sérstök skilaskýrsla.

Eins og fyrr segir er búið að samþykkja kaup á 660 fasteignum í Grindavík sem er um 85% af öllum þeim 781 umsóknum sem félaginu hefur borist.

„Þá hefur félagið nú boðið 513 aðilum kaupsamning eða 66% allra umsækjenda. Þinglýstir kaupsamningar eru 471 og hefur félagið greitt 22,2 milljarða króna í kaupsamningsgreiðslur og yfirtekið lán hjá 16 lánastofnunum að upphæð 11,4 milljarðar króna,“ segir í tilkynningunni.

Svara fyrir gagnrýni seljenda

Þórkatla svarar einnig fyrir gagnrýni sumra seljenda um að afgreiðsla þeirra mála hafi tekið of langan tíma.

„Þar er yfirleitt um frávik að ræða sem valdið hafa því að ekki hefur verið að hægt að klára þau mál á einfaldan hátt. Í sumum tilfellum hafa minniháttar atriði eins og útrunnin rafræn skilríki seljenda tafið málin.

Oftar er þó um að ræða flóknari úrvinnsluatriði eins og áhvílandi tryggingarbréf frá einkaaðilum og lánveitendum sem standa utan rammasamkomulags lánveitenda og Þórkötlu. Þá hefur komið upp að veð hvíli enn á eignum vegna uppgreiddra lána sem farist hefur fyrir að aflétta af eigninni,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is