Hafa keypt rússneskar afurðir fyrir 130 milljarða

Úkraína | 8. ágúst 2022

Hafa keypt rússneskar afurðir fyrir 130 milljarða

Fluttar hafa verið til Bandaríkjanna rússneskar sjávarafurðir fyrir tæplega milljarð bandaríkjadali, jafnvirði um 130 milljarða íslenskra króna, frá því að boðað var bann við slíkum innflutningi.

Hafa keypt rússneskar afurðir fyrir 130 milljarða

Úkraína | 8. ágúst 2022

Síðustu sendingarnar af rússnesku sjávarfangi til Bandaríkjanna bárust í sumar. …
Síðustu sendingarnar af rússnesku sjávarfangi til Bandaríkjanna bárust í sumar. Frá því að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, boðaði innflutningsbann hafa verið fluttar inn afurðir fyrir tæpan milljarð bandaríkjadal. AFP/Thomas Coex

Fluttar hafa verið til Bandaríkjanna rússneskar sjávarafurðir fyrir tæplega milljarð bandaríkjadali, jafnvirði um 130 milljarða íslenskra króna, frá því að boðað var bann við slíkum innflutningi.

Fluttar hafa verið til Bandaríkjanna rússneskar sjávarafurðir fyrir tæplega milljarð bandaríkjadali, jafnvirði um 130 milljarða íslenskra króna, frá því að boðað var bann við slíkum innflutningi.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti 11. mars að stjórnvöld þar vestra myndu banna innflutning rússneskra sjávarafurða. Var bannið sagt liður í efnahagsaðgerðum gegn Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Bannið tók ekki strax gildi og fengu meðal annars innflutningsaðilar að taka við þeim pöntunum sem þegar hefðu verið gerðar.

Frá því að tilkynnt var um bannið hafa verið fluttar inn sjávarafurðir frá Rússlandi fyrir tæplega milljarð bandaríkjadala, að því er fram kemur í umfjöllun Undercurrent News. Gert er ráð fyrir að bandarískir kaupendur hafi í sumar flutt inn síðustu sendingarnar af rússnesku sjávarfangi.

3.306 tonn flutt inn í júní

Gert var ráð fyrir að mikill fjöldi pantana myndi eiga sér stað í kjölfar yfirlýsingar Bidens fram að gildistöku bannsins. Ekki virðist hafa ræst úr þeim spádómum og voru 3.306 tonn af rússneskum afurðum flutt inn í júní fyrir 76,9 milljónir bandaríkjadala.

Hluti skýringa þess að ekki hafi verið pantað meira er talinn vera minni vilji meðal neytenda og veitingahúsa til að selja rússneskar afurðir vegna innrásarinnar.

mbl.is