Náði hrollvekjandi mynd af hrauninu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 17. ágúst 2022

Náði hrollvekjandi mynd af hrauninu

Á myndinni hér að neðan, sem náðist í grennd við gosstöðvarnar í Meradölum, má sjá glitta í glóandi hraunbráð undir storknuðu hrauni.

Náði hrollvekjandi mynd af hrauninu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 17. ágúst 2022

Vísindamenn hafa varað fólk við því að ganga á hraunbreiðunni.
Vísindamenn hafa varað fólk við því að ganga á hraunbreiðunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á myndinni hér að neðan, sem náðist í grennd við gosstöðvarnar í Meradölum, má sjá glitta í glóandi hraunbráð undir storknuðu hrauni.

Á myndinni hér að neðan, sem náðist í grennd við gosstöðvarnar í Meradölum, má sjá glitta í glóandi hraunbráð undir storknuðu hrauni.

Glóandi hraunbráðin sést vel undir hraunin.
Glóandi hraunbráðin sést vel undir hraunin. Ljósmynd/Thomas Sechet

Ljósmyndarinn, Thomas Sechet, deildi myndinni á Facebook og af athugasemdum við færslu hans má sjá að marga hryllir við tilhugsuninni um að ganga ofan á hrauninu, óafvitandi um hættuna sem leynist undir niðri.

Sjálfur bendir hann á þessa hættu og nefnir myndina af því tilefni „Augu djöfulsins“.

Ítrekað hefur verið fyrir fólki sem ætlar sér að gosstöðvunum að ganga ekki á gamla hrauninu, enda getur það endað illa.

Bráð frá Geldingadalagosi

Í gær greindi mbl.is frá því að bráð frá eld­gos­inu í Geld­inga­döl­um sé far­in að kreist­ast út úr eldra hraun­inu, und­an þunga nýja hrauns­ins sem lagst hef­ur ofan á það.

Vísindamenn hafa sagt það stór­vara­samt að vera á gamla hraun­inu, þar sem bráðin komi út af mikl­um krafti þegar gamla hraunið brest­ur.

mbl.is